|
6 Hrafnar Gisting á Akureyri |
||
|
|
Íbúðagisting á AkureyriÍbúðin er á tveimur hæðum og telur 3 svefnherbergi, stóra stofu þar sem einnig má koma fyrir dýnum, stórt eldhús með öllum búnaði, baðherbergi og svalir með heitum potti (sjá nánar hér). Í sama húsi er leigt út stórt aukaherbergi með sér snyrtingu og getur það annað hvort leigst sérstaklega eða með stóru íbúðinni ef þörf er á enn meira plássi. Staðsetning Hrafnagilsstræti 6 er sögufrægt hús á besta stað á Brekkunni á Akureyri. Örstutt í sund (250m), niður í bæ (500m) eða í lystigarðinn (500m) Sjá staðsetningu á korti hér: Map24 Ekki skemmir fyrir að nær allar strætóleiðir stoppa rétt hjá og á Akureyri er frítt í strætó! Vefsíða Strætisvagna Akureyrar. |
6 Hrafnar
|